Ljóst hvaða liðum íslensku liðin mæta

Dregið var í í forkeppni Evrópudeildar UEFA í morgun.
Dregið var í í forkeppni Evrópudeildar UEFA í morgun.

Í morgun var dregið í 1. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA. Stjarnan, FH og ÍBV voru fulltrúar Íslands að þessu sinni.

Stjarnan mætir Nömme Kalju frá Eistlandi og fer fyrri leikurinn fram í Garðabænum.

FH mætir FC Lahti frá Finnlandi og mun fyrri leikurinn fara fram í Finnlandi.

ÍBV fékk norska liðið Sarpsborg og verður fyrri leikurinn spilaður í Vestmannaeyjum.

Fyrri leikirnir fara fram þann 12. júlí en þeir seinni 19.júlí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert