„Við spiluðum ekki nógu vel og töpuðum leiknum,“ sagði Davíð Þór Viðarsson fyrirliði FH eftir 2:1 tap fyrir Val að Hlíðarenda í kvöld þegar leikið var í 10. umferð efstu deildar karla í knattspyrnu, Pepsi-deildinni.
Valsmenn sóttu meira til að byrja með og skoruðu að FH-ingar voru snöggir að svara. „Við svöruðum marki Valsmanna með því að jafna svo við getum ekki kvartað yfir því en við getum hinsvegar kvartað yfir því að fá á okkur aulamark seinna,“ bætti fyrirliðinn við og segir þriðjungur vallarins áhyggjuefni.
„Við vorum ekkert frekar að spá sérstaklega í hvað Valur var að gera, við spáðum meira í að við ætluðum að spila okkar leik en vorum ekki nógu hættulegir, náðum ekki að skapa okkur nógu mikið af færum. Það er ekki hægt að skrifa það bara á sóknarmenn okkar, heldur allt liðið. Við höldum boltanum ágætlega og mjög vel á okkar vallarhelmingi og fram á síðasta þriðjung vallarins en þá eigum við í basli með að komast í gegn. Við þurfum bara að gera betur þegar kemur að síðasta þriðjungi vallarins, þá þurfa sendingar að vera betri, fyrirgjafir betri og hlaupin betri.“