Mikilvægt að gleyma þessu

Jón Daði Böðvarsson í baráttunni við John Obi Mikel í …
Jón Daði Böðvarsson í baráttunni við John Obi Mikel í leiknum í dag. AFP

„Þetta eru vonbrigði. Það er ekki hægt að lýsa þessu öðruvísi. Við fengum kjörið tækifæri til að koma okkur áfram en við klúðruðum því bara,“ sagði Jón Daði Böðvarsson þegar niðurstaðan lá fyrir gegn Nígeríu í Volgograd í dag. 

„Nú er mikilvægt að gleyma þessu enda stutt á milli leikja. Við þurfum að ná sigri gegn Króötum. Það verður erfitt en eitthvað sem við verðum að gera,“ sagði Jón og honum fannst íslenska liðið opnast illa þegar Nígería skoraði fyrra markið úr skyndisókn.

„Ef allt hefði gengið upp þá hefðum við átt að vera yfir eftir fyrri hálfleik. Síðan kemur mark úr skyndisókn eftir innkast frá okkur. Þá vorum við allt of opnir og þeir refsuðu. Eftir það varð þetta erfiðara.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert