Náðum að galopna þær nokkrum sinnum

Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur, á Hásteinsvelli í dag.
Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur, á Hásteinsvelli í dag. Ljósmynd/Sigfús

„Ég er mjög sáttur við að ná jafntefli hér í dag á þessum mjög svo erfiða útivelli og ÍBV stelpurnar eru mjög góðar í fótbolta,” sagði Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur, eftir 1:1 jafntefli við ÍBV í Vestmannaeyjum í dag.

„Þetta var kannski ósanngjarnt en baráttan í liðinu mínu var algjörlega til fyrirmyndar.”

Grindavík komst yfir þvert gegn gangi leiksins í fyrri hálfleik.

„Ég er ekki alveg sammála því að þetta hafi verið þvert gegn gangi leiksins. Við náðum að galopna þær nokkrum sinnum.”

Ertu sáttur við stigasöfnunina það sem af er tímabili? „Já og nei. Stundum erum við að spila vel og stundum ekki,” saði Ray að endingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert