Dönsku meistararnir semja við Elías Rafn

Elías Rafn Ólafsson.
Elías Rafn Ólafsson. Ljósmynd/Breiðablik

Ungi og efnilegi knattspyrnumarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson hefur gengið til liðs við dönsku meistarana Midtjylland frá Breiðablik en Kópavogsliðið staðfesti þetta í kvöld.

Elías er fæddur árið 2000 og hefur ekki spilað keppnisleik fyrir meistaraflokk Breiðabliks en hann æfði með FH síðasta sumar. Hann hefur spilað með öðrum flokki Breiðabliks undanfarið og á að auki þrjá landsleiki að baki með U17 liðinu.

Blikar óska Elíasi til hamingju með þennan áfanga og um leið velfarnaðar á nýjum slóðum. Það verður gaman að fylgjast með okkar manni hjá dönsku meisturunum,“ segðir í tilkynningu Breiðabliks.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert