Heimir hættur með landsliðið

Heimir Hallgrímsson er hættur með landsliðið.
Heimir Hallgrímsson er hættur með landsliðið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heimir Hallgrímsson er hættur sem landsliðsþjálfari karlaliðsins í fótbolta. Þetta staðfesti KSÍ á heimasíðu sinni í dag. Heimir hefur unnið með landsliðinu síðan 2011, fyrst sem aðstoðarmaður Lars Lagerbäck, áður en hann tók við sem aðalþjálfari.

Heimir var landsliðsþjálfari er liðið keppti í lokakeppni EM og lokakeppni HM í fyrsta skipti. Síðasti leikur Heimis var á móti Króatíu í lokakeppni HM í Rússlandi. Hér að neðan má sjá yfirlýsingu sem KSÍ sendi frá sér ásamt ummælum frá Guðna Bergssyni, formanni KSÍ og Heimi sjálfum. 

Yfirlýsing KSÍ:

KSÍ getur nú staðfest að Heimir Hallgrímsson verður ekki áfram þjálfari A landsliðs karla. Sem kunnugt er urðu aðilar ásáttir um að gefa sér góðan tíma til að meta stöðuna í aðdraganda úrslitakeppni HM 2018, og taka upp þráðinn að móti loknu. Niðurstaðan er sú að Heimir hættir með liðið.

Guðni Bergsson, formaður KSÍ:  „Heimir var auðvitað okkar fyrsti kostur í starfið, enda hefur hann unnið frábært starf á þessum árum sem hann hefur verið með liðið.  Íslensk knattspyrna hefur aldrei staðið jafnframarlega og aldrei áður notið jafnmikillar athygli hérlendis sem erlendis. Við bundum miklar vonir við að Heimir yrði áfram, en niðurstaðan er þó sú að Heimir hættir með liðið að eigin ósk og vil ég fyrir hönd KSÍ þakka honum kærlega fyrir samstarfið og óska honum alls hins besta í framtíðinni. KSÍ mun nú taka næstu skref í ráðningu nýs landsliðsþjálfara," sagði Guðni. 

Heimir Hallgrímsson, fráfarandi landsliðsþjálfari:  
„Eftir 7 góð ár hjá Knattspyrnusambandi Íslands hef ég ákveðið að halda ekki áfram með A-landslið karla. Ég skil sáttur og þakklátur fyrir að hafa fengið að vera hluti af þessari sterku liðsheild sem þessi hópur hefur fyrst og fremst staðið fyrir. Hluti af hópi sem hefur rutt leiðina fyrir komandi kynslóðir og gert svo ótal margt í fyrsta skipti í sögunni. Það eru forréttindi að geta yfirgefið verkefnið á tímapunkti eins og í dag. Leikmenn á toppi síns ferils og hópurinn með mikla reynslu. Umgjörð, vinnuumhverfi og verkferlar í föstum skorðum. Góður árangur hefur tryggt okkur sæti meðal þeirra bestu næstu ár.  Árangurinn og frammistaðan hefur skapað virðingu fyrir íslenskri knattspyrnu. Þó að leikmenn eigi heiðurinn og stærsta þáttinn í velgengninni þá er þáttur starfsfólksins í kringum liðið ómetanlegur.  Verkefnin fram undan eru stór og spennandi. Um leið og ég þakka öllu samstarfsfólki, leikmönnum og stuðningsmönnum fyrir samstarfið, þá óska ég ykkur öllum velgengni næstu árin því ferðalagið er rétt að hefjast,“ sagði Heimir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert