Patrick Pedersen, framherji Vals, missir væntanlega af öðrum eða báðum leikjum Valsmanna gegn Santa Coloma frá Andorra í 2. umferð Evrópudeildar UEFA.
Pedersen fékk rauða spjaldið í leik Vals gegn Rosenborg í Þrándheimi í kvöld, eftir að Rosenborg hafði skorað úr vítaspyrnu í uppbótartímanum og tryggt sér 3:1 sigur og áframhald í Meistaradeildinni.
Pedersen hafði verið skipt af velli á 89. mínútu en Valsmenn mótmæltu vítaspyrnudómnum mjög og rauða spjaldið fór á loft á danska sóknarmanninn.
Hann gæti fengið allt að þriggja leikja bann fyrir tiltækið.