Valur að heltast úr lestinni

Alexis Kiehl sækir að marki Vals en Arianna Romero er …
Alexis Kiehl sækir að marki Vals en Arianna Romero er til varnar. Ljósmynd/Guðmundur Karl

Selfoss og Valur gerðu 1:1-jafntefli á Jáverkvellinum á Selfossi í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld.

Erna Guðjónsdóttir kom heimakonum yfir á 34. mínútu en Pála Marie Einarsdóttir bjargaði stigi fyrir Valsara undir lok leiks. Valsarar eru þó að heltast úr lestinni í toppbaráttunni en þeir eru nú sex stigum frá öðru sætinu. Selfoss fer upp um eitt sæti, í það sjöunda, og hefur nú níu stig.

Selfoss 1:1 Valur opna loka
90. mín. Elín Metta Jensen (Valur) á skot sem er varið Clem með enn eina frábæru vörsluna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert