Selfoss nær í framherja

Selfyssingar eru í harðri baráttu í neðri hluta Pepsi-deildar kvenna.
Selfyssingar eru í harðri baráttu í neðri hluta Pepsi-deildar kvenna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kvennalið Selfoss hefur náð sér í liðsauka fyrir seinni hluta Íslandsmótsins í knattspyrnu en í dag fékk enskur framherji, Grace Rapp, félagaskipti yfir til Selfyssinga og getur spilað með þeim frá og með næstu umferð.

Hún er 23 ára gömul og lék með Miami-háskóla en spilaði áður með enska liðinu Yeovil Town. Rapp á að baki þrjá leiki með U19 ára landsliði Englands.

Selfyssingar sjá á bak nokkrum leikmönnum vestur yfir haf vegna náms á næstunni og tvær eru þegar farnar og spila ekki meira á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert