Skaginn að blanda sér í toppbaráttuna

Bergdís Fanney skoraði bæði mörk ÍA í kvöld.
Bergdís Fanney skoraði bæði mörk ÍA í kvöld. kfia.is

ÍA er að blanda sér í toppbaráttuna í Inkasso-deild kvenna í knattspyrnu eftir 2:1-sigur á Haukum á Norðurálsvellinum í kvöld.

Bergdís Fanney Einarsdóttir skoraði í tvígang í sitthvorum hálfleiknum fyrir heimakonur en þar á milli jafnaði Berglind Baldursdóttir metin.

Sigurmark Bergdísar þýðir að ÍA er nú með 19 stig í 4. sætinu, tveimur stigum frá Fylki í 2. sæti og sex stigum frá toppliði Keflavíkur. Haukar eru áfram í 5. sæti með 13 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert