Eyjakonur stóðust áhlaup FH

Sigríður Lára fagnar marki sínu á Hásteinsvelli í dag.
Sigríður Lára fagnar marki sínu á Hásteinsvelli í dag. Ljósmynd/Sigfús

ÍBV sigraði FH með þremur mörkum gegn tveimur, 3:2, í 11. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld í Vestmannaeyjum. ÍBV leiddi með þremur mörkum í hálfleik en liðið var mun sterkari aðilinn þar.

Í síðari hálfleik gaf FH í og náðu þær tveimur mörkum. Cloé Lacasse gerði tvö mörk ÍBV og Sigríður Lára Garðarsdóttir eitt. Hjá FH skoraði Þóra Björk Eyþórsdóttir eitt og Rannveig Bjarnadóttir annað.

ÍBV 3:2 FH opna loka
90. mín. Rannveig Bjarnadóttir (FH) skorar 3:2. Rannveig setur boltann í skeytin eftir að boltinn datt fyrir fætur hennar úr horninu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert