Morten Beck með slitið krossband

Morten Beck er með slitið krossband og spilar ekki meira …
Morten Beck er með slitið krossband og spilar ekki meira með KR í sumar. mbl.is/Hari

Morten Beck, bakvörður KR í úrvalsdeild karla í knattspyrnu, spilar ekki meira með KR á þessari leiktíð en þetta staðfesti Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, í samtali við 433.is í dag. Morten Beck er með slitið krossband og mun hann að öllum líkindum missa af byrjun næstu leiktíðar líka.

Morten Beck hefur verið lykilmaður í liði KR síðan hann kom til félagsins árið 2016. Hann hefur komið við sögu í 14 leikjum með KR í sumar í bæði deild og bikar. Þetta er mikið áfall fyrir KR sem er í harðri baráttu um Evrópusæti en liðið er í fjórða sæti deildarinnar með 27 stig, 5 stigum minna en Stjarnan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert