Tufa hættir með KA eftir tímabilið

KSrdjan Tufegdzic, þjálfari KA.
KSrdjan Tufegdzic, þjálfari KA. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Srdjan Tufegdzic, eða Tufa eins og hann er kallaður, mun láta af störfum sem þjálfari karlaliðs KA í knattspyrnu eftir tímabilið en þetta kemur fram á vef félagsins.

Í frétt á vef KA segir;

Að undanförnu hafa stjórn knd. KA og Tufa, þjálfari Pepsídeildar liðs KA, átt í viðræðum um endurnýjun á samstarfssamningi þessara aðila, en núverandi samningur rennur út í lok þessa tímabils. Aðilar hafa komist að þeirri sameiginlegu niðurstöðu, að það þjóni hagsmunum beggja aðila að staldra við og endurnýja ekki samninginn.

Tufa, þá aðstoðarþjálfi félagsins, tók við stjórn karlaliðs KA í ágúst 2015 þegar Bjarni Jóhannsson lét af störfum sem þjálfari liðsins, en liðið var þá í 1. deildinni. Ári síðar, á fyrsta heila starfsári Tufa, tókst liðinu ætlunarverk sitt að komast á ný upp í deild hinna bestu, eftir þrettán ára fjarveru. Hefur liðið á þessum tíma náð að festa sig í sessi sem vel spilandi Pepsi-deildarlið.

Tufa kom fyrst til KA sem leikmaður árið 2006. Hann hefur sinnt þjálfun yngri flokka hjá félaginu með góðum árangri, áður en hann tók við sem þjálfari meistaraflokks karla. Tufa er í miklum metum hjá öllu KA fólki og á hann þátt í þjálfun flestra krakka sem æft hafa knattspyrnu hjá félaginu á sl. áratug eða svo.

„Ég hef náð þeim markmiðum með liðið sem við settum okkur er ég tók við fyrir þremur árum. Ég er ungur þjálfari með mikinn metnað sem vill ná enn lengra og tel tímapunktinn nú hentugan til að finna mér annað verkefni sem nær að ögra mér enn frekar. Ég er þakklátur KA fyrir það tækifæri sem ég fékk til að taka við liðinu á sínum tíma og er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð saman. Ég er viss um að liðið er tilbúið til að takast á við baráttuna í Pepsi-deildinni á komandi árum. Vissulega er erfitt að kveðja strákana og félagið í heild sinni en ég tel leikmönnum það fyrir bestu að þeir fái aðrar hugmyndir og ögranir með nýjum þjálfara,“ segir Tufa sem hefur innt af hendi gríðarlega vinnu við þjálfun og stjórnun liðsins á sl. árum.

„Þetta eru mikil tímamót fyrir félagið,“ segir Hjörvar Maronsson, formaður knattspyrnudeildar KA. „Tufa er einn af okkar bestu drengjum, búinn að skila frábærum árangri fyrir félagið sem við erum þakklát fyrir. Við stöndum nú á ákveðnum krossgötum þar sem við viljum taka nýja stefnu og þurfum því að taka nýjar ákvarðanir um uppbyggingu liðsins, sem og deildarinnar. Eftir samræður okkar á milli var ljóst að við og Tufa deilum þessari sýn fyrir félagið. Það eru spennandi tímar framundan fyrir KA, við höfum stórar hugmyndir um uppbyggingu á allri aðstöðu félagsins á KA svæðinu, en hugmyndir þess efnis voru kynntar að fjölmennum félagsfundi í KA sl. vor. Ég veit að Tufa mun eiga sér glæsta framtíð sem þjálfari, hvort sem er hérlendis, eða utan landsteinanna og óska ég honum alls hins besta í framtíðinni.“

Tufa mun stýra liði KA út tímabilið en eftir eru þrír leikir sem leiknir verða í þessum mánuði. Tufa verður svo formlega kvaddur á lokahófi félagsins í vertíðarlok.

Þegar þremur umferðum er ólokið í Pepsi-deildinni eru KA-menn í 7. sæti deildarinnar en Akureyrarliðið endaði í 7. sæti í deildinni á síðustu leiktíð, þá sem nýliði í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert