Mótmæla fordæmalausum úrskurði KSÍ

Lið Hugins frá Seyðisfirði.
Lið Hugins frá Seyðisfirði. Ljósmynd/Facebook-síða Hugins

Huginn á Seyðisfirði sendi nú í kvöld frá sér yfirlýsingu vegna úrskurðar áfrýjunardómstóls KSÍ frá því fyrr í dag. Forráðamenn Hugins skilja ekkert í vinnubrögðum KSÍ í málinu og hafna úrskurðinum.

Úrskurðað var að viðureign Hugins og Völsungs í 2. deild karla í knattspyrnu sem leik­in var 17. ág­úst á Seyðis­firði sé ógild­ og verður hún end­ur­tek­in á Seyðis­fjarðar­velli. Völsung­ur kærði leik­inn sem Hug­inn vann 2:1. Völsung­ar kærðu á þeim for­send­um að leikmaður þeirra sem fékk gult spjald á fyrstu mín­útu í upp­bót­ar­tíma hefði í kjöl­farið verið rek­inn af velli þar sem dóm­ar­inn hefði rang­lega talið að hann hefði fengið gula spjaldið fyrr í leikn­um.

Staðan var 1:1 þegar þetta gerðist en leikn­ar voru sex mín­út­ur í upp­bót­ar­tíma og á þeirri fimmtu skoruðu Hug­ins­menn sig­ur­mark sitt í leikn­um, 2:1, rang­lega manni fleiri að mati Hús­vík­inga. Mikið hef­ur gustað um KSÍ vegna máls­ins og gaf Völsung­ur frá sér afar harðorða yf­ir­lýs­ingu á dög­un­um þar sem fé­lagið sak­ar KSÍ um að hafa sent sér hót­un­ar­bréf og ásakað fé­lagið um lyg­ar. 

Nú eru það Huginsmenn sem hjóla í KSÍ og meðal annars krefjast þess „að stjórn KSÍ komi saman og taki málið til efnislegrar meðferðar enda niðurstaðan af þeirri stærðargráðu og engin fordæmi fyrir slíkum úrskurði í sögu íslenskrar knattspyrnu svo vitað sé til,“ segir meðal annars í tilkynningu þeirra í kvöld.

Þá gagnrýna þeir harðlega að samkvæmt úrskurðinum muni KSÍ greiða ferðakostnað Völsungs í leikinn sem leika skal aftur, en ekkert tillit tekið til þess kostnaðar sem lendir á Hugin vegna framkvæmdar leiksins.

„Það fellur allt að einu í þessu máli að úrskurðurinn dregur taum annars aðilans, þ.e. Völsungs,“ segja Huginsmenn, en tilkynningu þeirra má lesa í heild sinni hér neðst í fréttinni.

Vegna niðurstöðu áfrýjunardómstóls KSÍ

Í dag bárust knattspyrnudeild Hugins þær fréttir að áfrýjunardómstóll KSÍ hafi úrskurðað að leikur Hugins og Völsungs sem leikinn var 17. ágúst 2018 sé dæmdur ógildur og að hann skuli endurtaka á Seyðisfjarðarvelli.

Knattspyrnudeild Hugins mótmælir eindregið þessari niðurstöðu og krefst þess að stjórn KSÍ komi saman og taki málið til efnislegrar meðferðar enda niðurstaðan af þeirri stærðargráðu og engin fordæmi fyrir slíkum úrskurði í sögu íslenskrar knattspyrnu svo vitað sé til. Það er ljóst að með þessari niðurstöðu er hvorki verið að taka tillit til áhrifanna sem umrædd leikskýrsla hafði á næstu leiki mótsins né framvinduna á úrslit deildarinnar bæði á toppi og botni.

Í umræddum leik fengu þrír leikmenn Hugins og fimm leikmenn Völsungs gul spjöld. Á þessum tímapunkti barðist Huginn fyrir tilverurétti sinni [sic] í delidinni [sic]. Áhrif þeirra spjalda sem Huginn fékk í umræddum leik urðu til þess að tveir af máttarstólpum liðsins, þeir Rúnar Freyr Þórhallsson og Blazo Lalevic, fengu gul spjöld og þar af leiðandi leikbönn eftir fund aganefndar vegna uppsafnaðra spjalda. Bannið tóku þeir út á móti Aftureldingu, þann 25. ágúst, í leik sem skipti miklu máli í baráttunni sem liðið var í. Bjarki Baldvinsson, leikmaður Völsungs, fékk sömuleiðis spjald sem olli því að hann var í leikbanni gegn Gróttu sama dag. Úrslit þessarra [sic] leikja höfðu stórtæk áhrif á stöðu deildarinnar og léku liðin án sinna lykilmanna.

Skýrsla KSÍ í umræddum leik hafði því áhrif á fleiri leiki sem taka þarf tillit til. Í leik Hugins gegn Aftureldingu þar sem, eins og áður var tekið fram, liðið lék án tveggja lykilmanna, fékk Ingólfur Árnason rautt spjald og þar með leikbann í leik liðsins gegn Víði. Hversu langt á seilast í þessu máli til að fullnægja réttlætinu?

Við niðurröðun leikja í 2. deild er miðað við að tvær síðustu umferðir mótsins skulu leiknar á sama tíma þegar úrslit leikja geta haft úrslitaáhrif á stöðu liða í efstu og neðstu sætum deildarinnar. Með því að endurspila leikinn í miðri viku fyrir lokaumferðina hefur það augljós áhrif á toppbaráttu deildarinnar þar sem að Huginn á leik við Gróttu einungis þremur dögum síðar og t.a.m. á Vestri leik við úthvílda leikmenn Kára.

Eins og fram kemur í lokaúrskurði áfrýjunardómstóls skal allur ferðakostnaður Völsungs greiddur af [sic] fullu af KSÍ. Hvergi er þar að finna staf um það hver skal greiða fyrir þann kostnað sem fylgir því að kalla til þá leikmenn Hugins sem búsettir eru annars staðar en á Seyðisfirði vegna skóla og atvinnu. Ekki má heldur gleyma því að með því að leika í miðri viku þarf að taka tillit til vinnutaps og kostnaðar sem af því hlýst. Þá kemur KSÍ ekki til móts við Huginn [sic] í þeim kostnaði sem fylgir undirbúningi og framkvæmd við það að gera leikvöll tilbúinn til leiks. Það fellur allt að einu í þessu máli að úrskurðurinn dregur taum annars aðilans, þ.e. Völsungs.

Í umræddum leik, skv. niðurstöðu dómstólsins, fer dómarinn út fyrir valdsvið sitt með því að reka leikmann ranglega af velli. Valdsvið dómarans í leikjum Íslandsmótsins eru Knattspyrnulög KSÍ og í þessu tilviki stígur dómarinn vissulega út fyrir það svið. Ef hægt er að sýna fram á að dómari fer á mis við knattspyrnulögin með röngum ákvörðunum má þá túlka þessa niðurstöðu sem svo að hægt sé að kæra framkvæmd leiksins og hann þá endurleikinn? Með þessu er gefið vafasamt fordæmi sem ekki sér fyrir endann á.

Að framansögðu hafnar Knattspyrnudeild Hugins niðurstöðu áfrýjunardómstóls KSÍ.

Fyrir hönd knattspyrnudeildar Hugins

Sveinn Ágúst Þórsson, formaður knattspyrnudeildar

Brynjar Skúlason, þjálfari Hugins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert