Framherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson mun leika sinn síðasta heimaleik með ÍBV í dag er liðið fær Stjörnuna í heimsókn í næstsíðustu umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta. Gunnar leggur skóna á hilluna eftir tímabilið.
Gunnar Heiðar á að baki 148 leiki með ÍBV og í þeim hefur hann gert 62 mörk. Gunnar lék lengi sem atvinnumaður með alls níu félögum. Gunnar lék í Svíþjóð, Þýskalandi, Noregi, Danmörku, Englandi og Tyrklandi á atvinnumannaferlinum.
Hann lék með félögum á borð Halmstad, Hannover, Norrköping, Konyaspor svo einhver séu nefnd. Hann á auk þess 24 landsleiki að baki fyrir A-landslið Íslands og í þeim skoraði hann fimm mörk.