Hólmar Örn ráðinn þjálfari Víðis

Hólmar Örn handsalar samninginn við Víðismenn.
Hólmar Örn handsalar samninginn við Víðismenn. Ljósmynd/Facebook-síða Víðis

Hólmar Örn Rúnarsson hefur verið ráðinn þjálfari 2. deildarliðs Víðis í Garði í knattspyrnu en þetta kemur fram á Facebook-síðu félagsins.

Hólmar Örn samdi við Víðismenn til tveggja ára en þeir enduðu í 9. sæti í 2. deildinni á nýafstaðinni leiktíð. Hólmar hefur spilað með Keflvíkingum frá árinu 2015 en hann sneri aftur til síns uppeldisfélags eftir að hafa spilað með FH og Silkeborg í Danmörku.

Hólmar leysir Guðjón Árna Antoníusson og Sigurð Elíasson af hólmi en þeir óskuðu eftir að stíga til hliðar sem aðal- og aðstoðarþjálfari Víðis að nýloknu tímabili að því er fram kemur á Facebook-síðu Víðismanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert