Markakóngur kveður með stæl

Gunnar Heiðar Þorvaldsson stingur sér framhjá varnarmönnum Grindavíkur í kveðjuleiknum …
Gunnar Heiðar Þorvaldsson stingur sér framhjá varnarmönnum Grindavíkur í kveðjuleiknum í dag. Ljósmynd/Hilmar Bragi/Víkurfréttir

Gunnar Heiðar Þorvaldsson kvaddi á eftirminnilegan hátt í dag þegar hann skoraði þrennu í síðasta knattspyrnuleiknum á ferlinum, í 5:2 sigri Eyjamanna gegn Grindavík á útivelli í lokaumferð Pepsi-deildar karla.

Gunnar skoraði þar sína fjórðu þrennu í efstu deild hér á landi og fjórtán ár eru liðin frá þeirri síðustu. Hann gerði þrennur þrjú ár í röð, 2002 gegn ÍA, 2003 gegn Fram og 2004 gegn KA, en hann lék síðan erlendis frá 2004 til 2015.

Með þessum mörkum skoraði Gunnar 9 mörk fyrir Eyjamenn í deildinni á þessu ári og varð þeirra markahæsti maður annað árið í röð, og í fimmta skiptið samtals á ferlinum.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson reynir hjólhestaspyrnu gegn Stjörnunni í síðasta heimaleiknum …
Gunnar Heiðar Þorvaldsson reynir hjólhestaspyrnu gegn Stjörnunni í síðasta heimaleiknum á dögunum. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Komst uppfyrir Sigurlás í lokaleiknum

Hann varð ennfremur í dag fjórði Eyjamaðurinn til að skora 60 mörk í efstu deild karla frá upphafi, og komst upp fyrir Sigurlás Þorleifsson heitinn sem þriðji markahæsti leikmaður ÍBV í deildinni, með samtals 61 mark. Fyrir ofan hann eru aðeins þeir Tryggvi Guðmundsson sem skoraði 75 mörk fyrir ÍBV í deildinni og Steingrímur Jóhannesson heitinn sem skoraði 72 mörk. Sigurlás er nú í fjórða sætinu með 60 mörk. 

Þetta var 20. keppnistímabil Gunnars Heiðars í meistaraflokki en hann lék með ÍBV frá 1999 til 2004 og síðan með Halmstad í Svíþjóð, Hannover í Þýskalandi, Vålerenga í Noregi, Esbjerg í Danmörku, Reading á Englandi, Fredrikstad í Noregi, Norrköping í Svíþjóð, Konyaspor í Tyrklandi og Häcken í Svíþjóð áður en hann sneri aftur heim til Eyja sumarið 2015.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson í leik gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson í leik gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli. mbl.is/Golli

Gull- og silfurskór í sænsku úrvalsdeildinni

Bestu tímabilin sín í markaskorun átti Gunnar í Svíþjóð en hann varð markakóngur sænsku úrvalsdeildarinnar með Halmstad árið 2005, skoraði 16 mörk og gerði þá tvær þrennur fyrir liðið. Hann bætti um betur með Norrköping árið 2012, skoraði þá 17 mörk í úrvalsdeildinni en varð annar markahæsti maður deildarinnar í það skiptið.

Gunnar Heiðar varð hinsvegar markakóngur íslensku úrvalsdeildarinnar árið 2004 þegar hann skoraði 12 mörk fyrir Eyjamenn. Árið áður varð hann einn þriggja markahæstu sem skoruðu 10 mörk hver, en árið 2002 varð Gunnar í 3.-4. sæti markalistans með 11 mörk fyrir ÍBV.

Samtals lék Gunnar 328 deildaleiki á ferlinum, þar af 316 í efstu deild, og skoraði í þeim 124 mörk, þar af 121 í efstu deild, 61 á Íslandi og 60 erlendis. Af þeim voru 53 í sænsku úrvalsdeildinni.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson í leik með ÍBV árið 2004
Gunnar Heiðar Þorvaldsson í leik með ÍBV árið 2004 mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Til viðbótar þessu skoraði Gunnar Heiðar 5 mörk í 24 landsleikjum fyrir Íslands hönd, en hann lék fyrst með landsliðinu gegn Ítalíu árið 2005 og síðast gegn Slóveníu árið 2013. Í bikarkeppninni ber hæst sigurmarkið fyrir ÍBV gegn FH í úrslitaleiknum á Laugardalsvelli á síðasta ári.

Einn af mögnuðustu markaskorurum seinni ára í íslenskum fótbolta kvaddi stóra sviðið í dag og óhætt er að segja að hann hafi gert það með stæl.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson í baráttu við Carlos Martins í landsleik …
Gunnar Heiðar Þorvaldsson í baráttu við Carlos Martins í landsleik gegn Portúgal. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert