Ásgeir Börkur hættur með Fylki

Ásgeir Börkur Ásgeirsson í leik með FH gegn Fylki.
Ásgeir Börkur Ásgeirsson í leik með FH gegn Fylki. mbl.is/Valgarður Gíslason

Ásgeir Börkur Ásgeirsson og knattspyrnudeild Fylkis hafa komist að samkomulagi um starfslok hans hjá félaginu en frá þessu er greint á facebook-síðu Fylkis.

Á facebook-síðu Fylkis segir;

„Knattspyrnudeild Fylkis og Ásgeir Börkur Ásgeirsson hafa komist að samkomulagi um starfslok hjá félaginu.

Samvinna þessara tveggja aðila hefur verið frábær í mörg ár. Ásgeir Börkur er uppalinn hjá félaginu og hefur staðið sig frábærlega, verið fyrirliði liðsins og alltaf gert sitt allra besta.
Eftir að hafa rætt mikið saman síðustu daga þá komst félagið og Ásgeir Börkur sameiginlega að þeirri niðurstöðu að hann fengi að skoða aðra möguleika. Þess ber að geta að Ásgeir Börkur mun halda áfram að þjálfa yngri flokka hjá Fylki en hann hefur verið að standa sig mjög vel sem þjálfari hjá félaginu.

Knattspyrnudeild Fylkis og Ásgeir Börkur Ásgeirsson hafa komist að samkomulagi um starfslok. Ásgeir Börkur er uppalinn og gegnheill Fylkismaður. Hann á að baki 274 leiki fyrir meistaraflokk karla og hefur undanfarin 3 ár borið fyrirliðabandið á hendi sér.Ásgeir Börkur er fæddur leiðtogi og frábær fyrirmynd. Það er því með miklum trega og söknuði sem Knattspyrnudeild Fylkis kveður leikmanninn og óskar félagið Ásgeiri Berki velfarnaðar í þeim nýju áskorunum sem hann kýs að taka sér fyrir hendur," segir Þorvaldur Árnason formaður meistaraflokksráðs Fylkis.“

Á nóg eftir og spenntur fyrir nýrri áskorun

„Það voru fáir sem hefðu trúað því að ég, gjörsamlega óuppalandi og óferjandi á yngri árum, myndi enda með að spila 274 meistaraflokksleiki fyrir klúbbinn minn og bera fyrirliðabandið stoltur í tæp þrjú ár. En það gerðist. Ef til vill skrifast það meira á þrjósku og ástríðu, en hæfileika.

Það sem stendur helst upp úr á þessum 26 árum er hversu mörgu góðu fólki ég hef kynnst á leiðinni. Fyrst og fremst fékk ég að spila fótbolta með bestu vinum mínum og það eitt og sér eru forréttindi. Auk þess fékk ég að læra af mörgum ólíkum einstaklingum hvort sem það voru uppaldir og ungir Fylkismenn, goðsagnir hjá klúbbnum eða aðkomumenn. Að fá að þroskast og dafna sem einstaklingur hjá mínu uppeldisfélagi er þakkarvert og verð ég að eilífu þakklátur fyrir það!

En ég á nóg eftir og er spenntur fyrir næstu áskorun! Framhaldið er óljóst, en ég verð einhverstaðar að sparka í fótbolta næstu árin. Það er klárt!,“ segir Ásgeir Börkur á facebook-síðu Fylkis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert