René Joensen á förum frá Grindavík?

René Joensen skoraði tvö mörk fyrir Grindavík í Pepsi-deildinni í …
René Joensen skoraði tvö mörk fyrir Grindavík í Pepsi-deildinni í sumar. mbl.is/Eggert

René Joensen, leikmaður Grindavíkur í úrvalsdeild karla í knattspyrnu, gæti verið á förum frá félaginu en það er færeyski miðillinn in.fo sem greinir frá þessu. René er samningsbundinn Grindavík en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.

René sagði í samtali við færeyska miðilinn að hann vildi reyna fyrir sér hjá stærra félagi en Grindavík endaði í tíunda sæti Pepsi-deildarinnar í sumar með 25 stig og var sex stigum frá fallsæti.

René spilaði 22 leiki í bæði deild og bikar í sumar þar sem hann skoraði þrjú mörk en hann kom til félagsins sumarið 2017 frá Vendsyssel í Danmörku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert