Sænsk lögga með flautuna í Laugardalnum

Gylfi Þór Sigurðsson og Steven Zuber í fyrri leik Sviss …
Gylfi Þór Sigurðsson og Steven Zuber í fyrri leik Sviss og Íslands. AFP

Sænski dómarinn Andreas Ekberg mun dæma viðureign Íslands og Sviss í Þjóðadeildinni sem fram fer á Laugardalsvelli annað kvöld.

Ekberg hefur dæmt á alþjóðavettvangi frá árinu 2013, en samkvæmt netmiðlum var hann lögreglumaður áður en hann gerðist alþjóðadómari. Hann er þá ekki eini lögreglumaðurinn sem færði sig yfir í dómgæslu en meðal annarra er Howard Webb sem lengi var einn fremsti dómari Breta.

Leikur íslands og Sviss hefst klukkan 18.45 á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert