Guðjón og Thomsen á förum frá Val

Guðjón Pétur Lýðsson.
Guðjón Pétur Lýðsson. mbl.is//Hari

Ósennilegt er að Guðjón Pétur Lýðsson og Tobias Thomsen verði áfram í leikmannahópi Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu á næsta tímabili. 

Samningur þeirra við Val er að renna út og Börkur Edvardsson, formaður meistaraflokksráðs Vals, gefur sterklega í skyn við netmiðilinn Fótbolta.net að þeir séu á förum. „Segir Börkur nokkuð ljóst að þeir verða ekki í Valsbúningnum á næsta ári,“ segir í frétt Fótbolta.net. 

Jafnframt er haft eftir Birki að Valur muni fá til sín einhverja leikmenn en ekkert sé í hendi í þeim efnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert