Hin 18 ára gamla Bergdís Fanney Einarsdóttir skrifaði í dag undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Vals en þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér. Bergdís er uppalin á Akranesi og hefur spilað með ÍA allan sinn feril.
Bergdís á að baki 57 meistaraflokksleiki með ÍA þar sem hún hefur skorað 22 mörk en hún skoraði 15 mörk í 18 leikjum með ÍA í 1. deild kvenna í sumar. Bergdís á að baki fjölda landsleikja með U17 og U19 ára landsliðum Íslands.