Dion Acoff laus frá Val

Dion Acoff með Íslandsmeistarabikarinn í haust.
Dion Acoff með Íslandsmeistarabikarinn í haust. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Dion Acoff er laus allra mála frá Íslandsmeisturum Vals í knattspyrnu. Hann vonast til þess að spila erlendis og er að leita fyrir sér þar núna.

Þetta kemur fram á fotbolti.net, en þar segir að Acoff og Valur hafi komist að samkomulagi að nýta sér endurskoðunarákvæði í samningi hans. Hins vegar séu báðir aðilar opnir fyrir því að ræða saman á ný ef Acoff finnur sér ekki lið á erlendri grundu.

Acoff hefur spilað hér á landi síðan sumarið 2015 þegar hann gekk í raðir Þróttar R. Hann hefur orðið Íslandsmeistari með Val síðastliðin tvö ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert