KA staðfestir Guðjón Pétur

Óli Stefán Flóventsson þjálfari KA og Guðjón Pétur Lýðsson handsala …
Óli Stefán Flóventsson þjálfari KA og Guðjón Pétur Lýðsson handsala samninginn í dag. Ljósmynd/ka-sport.is

KA staðfesti rétt í þessu að félagið hefði samið við knattspyrnumanninn Guðjón Pétur Lýðsson til þriggja ára en mbl.is skýrði frá því fyrr í dag að hann væri á leið til Akureyrarliðsins.

Guðjón hefur spilað með Val undanfarin ár og unnið Íslandsmeistaratitilinn með liðinu tvö síðustu tímabil. Guðjón hefur einnig með Breiðabliki og Haukum í efstu deild og þá var hann um skeið hjá Helsingborg í Svíþjóð árið 2011 þar sem hann varð sænskur meistari.

Guðjón er 31 árs gamall miðjumaður og hefur skorað 44 mörk í 179 leikjum í efstu deild hér á landi á ferlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert