Portúgalskur markmaður í ÍBV

Rafael Veloso er mættur til Vestmannaeyja.
Rafael Veloso er mættur til Vestmannaeyja. Ljósmynd/ÍBV

Knattspyrnudeild ÍBV gekk í dag frá samningi við portúgalska markmanninn Rafael Veloso. Hann lék síðast með Valdres í D-deild Noregs. Veloso er 25 ára og uppalinn hjá Sporting. 

Veloso er búinn að spila með Belenenses, B-liði Deportivo La Coruna og Oriental, ásamt Valdres. Hann lék 33 leiki fyrir yngri landslið Portúgals og þar af þrjá leiki með U20 ára liðinu. 

Pedro Hipolíto tók við þjálfun ÍBV af Kristjáni Guðmundssyni eftir sumarið, en hann er einmitt frá Portúgal. Halldór Páll Geirsson yfirgaf ÍBV á dögunum og er Veloso ætlað að fylla skarð hans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert