Knattspyrnumaðurinn Atli Guðnason skrifaði í gær undir eins árs samning við FH en þetta kemur fram á Twitter-síðu FH-inga. Fyrrverandi samningur Atla rann út í október og ríkti nokkur óvissa um framhaldið hjá leikmanninum en nú er ljóst að hann verður áfram í Hafnarfirðinum.
Atli skoraði fimm mörk með FH í sumar en hann kom við sögu í 24 leikjum með liðinu í bæði deild og bikar. Hann á að baki 343 meistaraflokksleiki fyrir FH þar sem hann hefur skorað 89 mörk en hann hefur einnig leikið með HK og Fjölni á ferli sínum hér á landi.
Gleðifréttir úr Kaplakrika. Atli Guðnason skrifaði í dag undir nýjan samning við FH sem gildir út tímabilið 2019. Atli Guðna hefur spilað 343 leikir fyrir FH og skorað 89 mörk. #ViðerumFH #fotboltinet pic.twitter.com/mx1VrgYcM7
— FHingar.net (@fhingar) November 16, 2018