Kári verður fyrirliði

Kári Árnason í baráttunni gegn heimsmeisturum Frakka.
Kári Árnason í baráttunni gegn heimsmeisturum Frakka. AFP

Miðvörðurinn Kári Árnason verður fyrirliði Íslands í vináttulandsleiknum gegn Katar sem fram fer í Belgíu á morgun. 

Erik Hamrén landsliðsþjálfari greindi frá þessu á blaðamannafundi í dag. Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson verður hvíldur og mun ekki koma við sögu en hóf nýlega að leika á ný með Cardiff eftir meiðsli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert