Þórdís Elva til Fylkis

Fylkiskonur fagna sigrinum í Inkasso-deildinni.
Fylkiskonur fagna sigrinum í Inkasso-deildinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnukonan Þórdís Elva Ágústsdóttir er gengin í raðir Fylkis frá FH og hefur skrifað undir tveggja ára samning við Árbæjarliðið.

Þórdís Eva er 18 ára gömul. Hún er alin upp hjá Haukum og hefur spilað 60 meistaraflokksleiki með liðinu og skorað í þeim 5 mörk. Hún spilaði 18 leiki með Haukunum í Inkasso-deildinni í sumar og skoraði í þeim 3 mörk. Þórdís hefur leikið 7 leiki með U-17 ára landsliðinu.

Fylkir tryggði sér í haust sæti í Pepsi-deildinni á næsta tímabili en Árbæjarliðið varð meistari í Inkasso-deildinni.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert