Tvær frá Þór/KA æfa með Leverkusen

Anna Rakel Pétursdóttir faðmar Söndru Maríu Jessen.
Anna Rakel Pétursdóttir faðmar Söndru Maríu Jessen. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Anna Rakel Pétursdóttir og Sandra María Jessen, leikmenn Þórs/KA í knattspyrnu, héldu í morgun út til Þýskalands þar sem þær munu vera við æfingar hjá Bayer Leverkusen út þessa viku.

Heimasíða Þórs greinir frá. Sandra María þekkir vel til hjá félaginu, en hún var á láni þar fyrri hluta ársins 2016 og þar til Íslandsmótið hófst þá um vorið. Sandra fór beint í lið hjá Le­verku­sen þegar hún kom þangað í byrj­un fe­brú­ar og spilaði alla átta deild­ar­leiki liðsins í byrj­un­arliði frá þeim tíma. 

„Margar af þeim leikmönnum, sem þá spiluðu með mér eru ennþá þarna núna. Liðið hefur misst nokkra leikmenn í meiðsli og hafa boðið okkur Önnu Rakel að koma og æfa með þeim,“ segir Sandra við heimasíðu Þórs, en ekki eru neinar viðræður hafnar um samning.

„Við ætlum allavega að fara út og njóta þess að fá að æfa við frábærar aðstæður með góðu liði,“ segir Sandra María.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert