Rúnar Kristinsson, Eyjólfur Sverrisson, Guðni Bergsson, Brynjar Björn Gunnarsson, Birkir Kristinsson, Arnar Grétarsson og alþingismaðurinn Willum Þór Þórsson eru meðal þeirra sem taka þátt í stórleik í Egilshöll á sunnudaginn.
Um er að ræða leik vegna Tommadagsins svokallaða, sem haldinn er til stuðnings við Tómas Inga Tómasson og fjölskyldu hans. Tómas Ingi, sem er yfirþjálfari yngri flokka Fylkis og aðstoðarþjálfari U21-landsliðs Íslands, hefur ekki náð bata eftir að hann fékk gervimjöðm í ársbyrjun 2015, og á þessu ári hefur hann varið yfir 200 dögum inni á spítala. Hann bíður þess nú að komast í aðgerð í Þýskalandi þar sem fjórar aðgerðir hér á landi hafa ekki skilað árangri.
Í leiknum í Egilshöll á sunnudag munu þeir Rúnar Kristinsson og Eyjólfur Sverrisson leiða saman hesta sína í viðureign sem ætla má að verði skemmtileg. Nóg er af valinkunnum kempum í báðum liðum en leikmannalistana má sjá hér að neðan.
„Ég veit að Rúnar er klókur þjálfari, hann veit alveg hvað hann er að gera. Sumir halda að mitt lið sé að fara inn í leikinn til að verjast en við munum koma á óvart. Ég valdi nokkra sóknarsinnaða leikmenn í hópinn, eins og Sigga Ágústs sem skoraði sem dæmi mark á æfingu um daginn og gaf boltann tvisvar, það gerist ekki oft. Nú þegar hópurinn hefur verið tilkynntur þá veit ég að það fer um Rúnar. Það er tilhlökkun í hópnum, við munum fara í leikinn til að sigra,“ segir Eyjólfur, þjálfari „landsliðsins“.
„Við förum fullir sjálfstrausts inn í leikinn. Ég er með frábæra leikmenn í mínu liði. Ég held að nánast allir leikmenn mínir hafi verið fyrirliðar hjá sínum félagsliðum í gegnum tíðina, nema náttúrulega Hjörvar. Við ætlum að spila sóknarbolta og ég treysti mest á að Willum Þór Þórsson beri uppi sóknarleik okkar, útsjónasamur, teknískur og hraður strákur. Úrslit leiksins munu ráðast á dagsforminu,“ segir Rúnar, þjálfari „pressuliðsins“.
Eins og fyrr segir er Tommadagurinn á sunnudag og hefst dagskráin kl. 9.45 með opinni æfingu fyrir stelpur og stráka á aldrinum 6-12 ára, undir handleiðslu Eyjólfs, Rúnars, Arnars Grétarssonar og fleiri þjálfara. Kostar aðgangur 1.000 krónur fyrir hvert barn. Leikurinn á milli liða Rúnars og Eyjólfs hefst svo kl. 11.
Þeim sem ekki komast á Tommadaginn en langar að styrkja verkefnið er bent á að hægt er að leggja inn á reikning 528-14-300, kt. 0706694129.
Rúni Kristinsson | Þjálfari |
Sigurður Þórðarson | Búningastjóri |
Nökkvi Sveinsson | Liðsstjóri |
Róbert Magnússon | Sjúkraþjálfari |
Leikmenn | |
Hjörvar Hafliðason | 6 leikir í A liði yngri flokka, 112 leikir í B liði. |
Kristján Finnbogason | 268 leikir í efstu deild - 20 A landsleikur |
Brynjar Björn Gunnarsson | 74 A landsleikir |
Þormóður Egilsson | 239 leikir í Efstu deild - 8 A landsleikir |
Guðni Bergsson (c) | 80 A landsleikir |
Reynir Leósson | 201 leikir í efstu deild |
Rúnar Kristinsson | 104 A landsleikir |
Ingi Sigurðsson | 205 leikir í efstu deild |
Bjarnólfur Lárusson | 165 leikir í efstu deild |
Lúðvík Bergvinson | 38 leikir í efstu deild |
Sigurvin Ólafsson | 135 leikir í efstu deild - 7 A landsleikir |
Hilmar Björnsson | 185 leikir í efstu deild - 3 A landsleikir |
Þorsteinn Guðjónsson | 53 leikir í efstu deild - 4 A landsleikir |
Willum Þór Þórsson | 2 samþykkt frumvörp á Alþingi |
Eyjólfur Sverrisson | Þjálfari |
Lúðvík Jónsson | Búningastjóri |
Óskar Hrafn Þorvaldsson | Liðsstjóri |
Stefán Örn Pétursson | Sjúkraþjálfari |
Leikmenn | |
Jörundur Kristinsson | 54 leikir í B deild |
Birkir Kristinsson | 316 leikir í efstu deild - 74 A landsleikir |
Gunnar Sigurðsson | 131 leikir í efstu deild |
Arnar Már Arnþórsson | 219 ELO stig |
Matthías Sigvaldason | 22 leikir í efstu deild |
Veigur Sveinsson | 10 leikir í bikarkeppni KSÍ |
Óli Ingi Skúlason (c) | 259 leikir í atvinnumennsku - 36 A landsleikir |
Eyjólfur Sverrisson | 307 leikir í A-deild Þýsk - 0 leikir í A-deild Ísl. |
Jón Steindór Þorsteinsson | Stjórnað 287 leikjum sem þjálfari |
Arnar Grétarsson | 149 leikir í efstu deild - 71 A landsleikur |
Sindri Bjarnason | 55 leikir í efstu deild |
Sigurður Ágústsson | Sigur á Dolmatov í hraðskák 2001 |
Hörður Már Magnússon | 135 leikir í efstu deild |
Pétur Arason | 112 ELO stig |
Þorsteinn Sveinsson | 36 leikir í efstu deild |
Gunnar Oddsson | 291 leikur í efstu deild - 3 A landsleikir |