Daði til Framara

Daði Lárusson.
Daði Lárusson. Ljósmynd/Fram

Daði Lárusson, fyrrverandi markvörður FH í knattspyrnu, hefur verið ráðinn markvarðarþjálfari hjá Fram en þetta kemur fram á vef félagsins.

Daði lék 182 leiki í efstu deild með FH og 20 Evrópuleiki og varð hann fimm sinnum Íslandsmeistari með Hafnarfjarðarliðinu og einu sinni bikarmeistari. Þá lék hann 3 A-landsleiki.

Ásamt því að þjálfa markmenn meistaraflokks Fram mun Daði koma að þjálfun markmanna í yngri flokkum félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert