Jón Gísli til Fjölnismanna

Jón Gísli Ström í leik með ÍR-ingum í sumar.
Jón Gísli Ström í leik með ÍR-ingum í sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sóknarmaðurinn Jón Gísli Ström er genginn til liðs við Fjölni og mun leika með liðinu í Inkasso-deildinni á næstu leiktíð.

Jón Gísli kemur til Fjölnismanna frá ÍR-ingum en hann hefur skorað 73 mörk í 174 leikjum með Breiðholtsliðinu.

Fjölnir féll úr Pepsi-deildinni í haust en ÍR-ingar féllu úr Inkasso-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert