Nemanja Latinovic framlengir við Grindavík

Nemanja Latinovic verst Hilmari Árna Halldórssyni síðasta sumar.
Nemanja Latinovic verst Hilmari Árna Halldórssyni síðasta sumar. mbl.is/Árni Sæberg

Bakvörðurinn Nemanja Latinovic framlengdi í dag samning sinn við knattspyrnudeild Grindavíkur um tvö ár. 

Nemanja eða Nemó, er uppalinn hjá Grindavík og er hann búinn að spila 26 leiki með liðinu og skora í þeim tvö mörk. Eitt markanna kom í Pepsi-deildinni og hitt í bikarnum. 

Hann lék 15 deildarleiki fyrir Grindavík síðasta sumar og skoraði í þeim eitt mark. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert