Þjálfari frá Chelsea ráðinn til Þórs

Perry Mclachlan við Þórsmerkið.
Perry Mclachlan við Þórsmerkið. Ljósmynd/Þór

Knattspyrnulið Þórs á Akureyri hefur ráðið til sín markmannsþjálfara sem meðal annars hefur reynslu af því að þjálfa hjá stórliði Chelsea á Englandi.

Perry Mclahlan heitir hann og er 28 ára gamall en hefur þegar um tíu ára reynslu af þjálfun markvarða bæði á Englandi og í Bandaríkjunum. Hann var markmannsþjálfari hjá Chelsea þar sem hann var í þjálfarateymi kvennaliðsins auk þess sem hann þjálfaði í akademíu félagsins. Þá hefur hann unnið fyrir Crystal Palace og Wolves, segir á heimasíðu Þórs.

Mclahlan mun verða í þjálfarateymi Gregg Ryder sem tók við þjálfun Þórs í haust, auk þess sem hann mun þjálfa markmenn í yngri flokkum félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert