Guðmunda Brynja í KR

Guðmunda Brynja ásamt Bojana Besic, þjálfara KR og Rögna Lóu …
Guðmunda Brynja ásamt Bojana Besic, þjálfara KR og Rögna Lóu Stefánsdóttur, aðstoðarþjálfara. Ljósmynd/KR

Knattspyrnukonan Guðmunda Brynja Óladóttir skrifaði í dag undir tveggja ára samning við KR. Hún kemur til félagsins frá Stjörnunni þar sem hún hefur verið síðustu tvö ár. 

Guðmunda er uppalin á Selfossi og spilaði hún 131 leik fyrir Selfoss og skoraði í þeim 64 mörk. Hún kom til Stjörnunnar árið 2017 og skoraði þar 14 mörk í 40 leikjum í öllum keppnum. 

Framherjinn hefur skorað eitt mark í fimmtán A-landsleikjum. KR hafnaði í áttunda sæti Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert