Valskonur skoruðu sjö gegn ÍBV

Guðrún Karítas Sigurðardóttir skoraði tvö.
Guðrún Karítas Sigurðardóttir skoraði tvö. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Valskonur unnu afar sannfærandi 7:1-sigur á ÍBV í Egilshöllinni í Lengjubikar kvenna í fótbolta í dag. Valur er á toppi A-deildarinnar með sex stig en ÍBV er án stiga. 

ÍBV komst yfir strax á fimmtu mínútu er Guðný Árnadóttir skoraði sjálfsmark en Margrét Lára Viðarsdóttir jafnaði fyrir hlé. Valskonur voru svo mikið sterkari aðilinn í seinni hálfleik.

Hlín Eiríksdóttir skoraði tvö og Guðrún Karítas Sigurðardóttir eitt á fyrstu tíu mínútum seinni hálfleiks og staðan orðin 4:1. Bergdís Fanney Einarsdóttir og Dóra María Lárusdóttir bættu svo við mörkum áður en Guðrún Karítas skoraði sjöunda markið í uppbótartíma og þar við sat. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert