Dramatískt jafntefli hjá Keflavík og FH

Anton Freyr Hauks Guðlaugsson skoraði jöfnunarmark Keflavíkur.
Anton Freyr Hauks Guðlaugsson skoraði jöfnunarmark Keflavíkur.

Keflavík og FH gerðu í kvöld dramatískt 2:2-jafntefli í 4. riðli A-deildar Lengjubikars karla í fótbolta í Reykjaneshöllinni. Bæði lið skoruðu á lokamínútunum. 

Steven Lennon kom FH yfir með marki úr víti á síðustu mínútu fyrri hálfleiks og var staðan í hálfleik því 1:0, FH í vil. Ingimundur Aron Guðnason jafnaði í 1:1 á áttundu mínútu seinni hálfleiks. 

Á 88. mínútu kom Brandur Olsen FH yfir á nýjan leik og bjuggust þá flestir við að FH væri að ná í þrjú stig. Keflavík neitaði hins vegar að gefast upp því aðeins mínútu síðar jafnaði Anton Freyr Hauks Guðlaugsson og þar við sat. 

Bæði lið eru með fjögur stig í riðlinum og í tveimur efstu sætunum. Keflavík mætir Breiðabliki á sunnudaginn kemur og FH tekur á móti grönnum sínum í Haukum á fimmtudaginn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert