Danskur sóknarmaður til Stjörnunnar

Nimo Gribenco.
Nimo Gribenco. Ljósmynd/Stjarnan

Stjörnumenn hafa fengið danska sóknarmanninn Nimo Gribenco til liðs við sig og mun hann leika með liðinu í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Gribenco, sem er 22 ára gamall, kemur til Garðabæjarliðsins að láni frá danska liðinu AGF út tímabilið.

Á facebook-síðu Stjörnunnar kemur fram;

„Nimo sem er 22 ára danskur sóknarmaður vakti verðskuldaða athygli þegar hann lék með Stjörnunni í fótbolti.net mótinu fyrr á árinu er hann var staddur í heimsókn hér hjá félaginu. Nimo er ætlað að breikka leikmannahópinn og auka samkeppni meðal fremstu manna. Leikmaðurinn er þegar kominn til landsins og búist er við því að hann fái leikheimild með Stjörnunni á allra næstu dögum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert