Ótrúlegt mark Davíðs gegn KA (myndband)

Davíð Þór Ásbjörnsson í leik með Fylki.
Davíð Þór Ásbjörnsson í leik með Fylki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karlalið Fylkis og KA búa sig nú undir komandi leiktíð í fótboltanum í æfingaferð í Belek, Tyrklandi. Þau nýttu tækifærið og mættust í æfingaleik og skoraði Davíð Þór Ásbjörnsson magnað mark fyrir Fylki í leiknum. 

Davíð tók sig til og lét vaða af löngu færi með þeim afleiðingum að boltinn fór í boga og í þverslána og inn. Flugið á boltanum var magnað og markið hið fallegasta. Hér að neðan má sjá þetta ótrúlega mark. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert