Hilmar Árni framlengir í Garðabænum

Hilmar Árni Halldórsson skrifaði undir þriggja ára samning við Stjörnuna …
Hilmar Árni Halldórsson skrifaði undir þriggja ára samning við Stjörnuna fyrr í dag. mbl.is/Hari

Knattspyrnumaðurinn Hilmar Árni Halldórsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna en þetta staðfesti félagið á Twitter síðu sinni í dag. Samingurinn er til þriggja ára og gildir til ársins 2021 en Hilmar Árni hefur verið besti leikmaður Stjörnunnar, undanfarin ár.

Hann gekk til liðs við félagið frá Leikni í Reykjavík haustið 2015 en hann á að baki 88 leiki í efstu deild með Leikni og Stjörnunni þar sem hann hefur skorað 37 mörk en hann er uppalinn í Breiðholtinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert