Þjálfarinn hélt markinu hreinu

Bojana Kristín Besic skellti sér í mark.
Bojana Kristín Besic skellti sér í mark. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bojana Kristín Besic, þjálfari kvennaliðs KR í knattspyrnu, skellti sér í markið á KR-velli í gær er heimakonur unnu 2:0-sigur á FH í lokaleik B-deildar Lengjubikarsins.

Aðalmarkvörður KR, Ingibjörg Valgeirsdóttir, var ekki með vegna meiðsla og stóð því þjálfarinn vaktina á milli stanganna og hélt hreinu í þokkabót. KR-ingar enduðu í 3. sæti riðilsins en þetta var í fyrsta sinn sem liðið hélt hreinu í fimm leikjum. Bojana er 39 ára gömul en hún lék um árabil í efstu deild, lengst af með Þór/KA sem varnarmaður.

KR-ingar hefja leik á Íslandsmótinu á fimmtudaginn næsta þegar þeir heimsækja HK/Víking í Kórinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert