„Ertu fokking þroskaheftur?“ á Pétur Viðarsson varnarmaður í liði FH að hafa sagt við aðstoðardómarann þegar ÍA og FH áttust við í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu í kvöld þar sem Skagamenn höfðu betur 2:0.
Pétur Guðmundsson dómari leiksins gaf Pétri rautt spjald fyrir munnsöfnuðinn á 71. mínútu en Gunnar Birgisson, sem hefur starfað við lýsingar á RÚV og er einn af sérfræðingum vefsíðunnar fótbolti.net, var nálægt atvikinu og greinir frá því á Twitter-síðu sinni hvað Pétur hafi sagt við aðstoðardómarann.
Pétur verður því í leikbanni þegar FH-ingar taka á móti Íslandsmeisturum Vals í 4. umferð Pepsi Max-deildarinnar á mánudaginn.
„Ertu fokking þroskaheftur“ segir Pétur Viðarsson við aðstoðardómarann og uppsker viðstöðulaust rautt spjald.
— Gunnar Birgisson (@grjotze) May 15, 2019