Sjö jafnir og markahæstir

Björgvin Stefánsson er búinn að skora þrjú mörk fyrir KR.
Björgvin Stefánsson er búinn að skora þrjú mörk fyrir KR. mbl.is/Árni Sæberg

Eftir fimm fyrstu umferðirnar í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu eru alls sjö leikmenn búnir að skora mest eða þrjú mörk hver.

KR er eina liðið sem á tvo leikmenn á þeim lista, en það eru þeir Pálmi Rafn Pálmason og Björgvin Stefánsson. Aðrir sem hafa skorað þrjú mörk eru Halldór Orri Björnsson, FH, Nikolaj Hansen, Víkingi, Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni, Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA, og Kolbeinn Þórðarson, Breiðabliki.

Í Pepsi Max-deild kvenna er Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki, markahæst með fimm mörk í fyrstu fjórum umferðunum og næst kemur Stephany Mayor, Þór/KA, með fjögur mörk.

Agla María Albertsdóttir hefur skorað fimm mörk fyrir Blika til …
Agla María Albertsdóttir hefur skorað fimm mörk fyrir Blika til þessa. Ljósmynd/Sigfús Gunnar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert