Við börðumst alveg til loka

Natasha Anasi með fyrirliðabandið hjá Keflavík.
Natasha Anasi með fyrirliðabandið hjá Keflavík. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

„Við börðumst alveg til loka og þetta var svakalegur leikur, “ sagði Natasha Anasi fyrirliði Keflavíkurkvenna sem urðu að sætta sig við 2:1 tap fyrir Þór/KA í Keflavík í dag, þegar leikið var í 5. umferð efstu deildar kvenna í fótboltan, Pepsi-deildinni.

Óhætt er að segja að Keflavík hafi sótt af krafti og undir lokin lá mark í loftinu, en aðeins í loftinu.  Fyrirliðinn gefst þó ekki upp.  „Okkur fannst  svo sárt að fá ekki neitt stig en við höfum alltaf sagt að við verðum að halda áfram og þá komi stigin.  Ég veit að ef við spilum svona áfram munu þessi stig koma, það er bara svoleiðis og við vorum oft mjög nálægt að skora en svona er víst fótboltinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert