Guðmunda skaut KR áfram

Guðmunda Brynja Óladóttir skaut KR í átta liða úrslitin.
Guðmunda Brynja Óladóttir skaut KR í átta liða úrslitin. mbl.is/Kristinn Magnússon

KR er komið í átta liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í fótbolta eftir 1:0-útisigur á Keflavík í dag. Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði sigurmarkið á 82. mínútu. 

HK/Víkingur er einnig kominn áfram eftir 4:0-heimasigur á 1. deildarliði Aftureldingar á heimavelli. Esther Rós Arnarsdóttir kom HK/Víkingi í 1:0 á 22. mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiks. 

Þórhildur Þórhallsdóttir bætti við öðru marki á 67. mínútu og fimm mínútum síðar skoraði Ástrós Silja Luckas þriðja mark HK/Víkings. Tyrkneska landsliðskonan Fatma Kara gulltryggði svo 4:0-sigur HK/Víkings með marki á 79. mínútu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert