Helgi Mikael dæmir í Kosóvó

Helgi Mikael Jónasson
Helgi Mikael Jónasson Ljósmynd/Ómar Óskarsson

Helgi Mikael Jónasson dæmir leik Prishtina frá Kosóvó og St Joseph's frá Gíbraltar í Evrópudeildinni í fótbolta. Leikurinn fer fram 27. júní í Pristina, Kosóvó.

Helga til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðarson og Bryngeir Valdimarsson. Fjórði dómari verður Þorvaldur Árnason.

Helgi hefur verið á ferð og flugi á árinu og dæmdi hann m.a vináttuleik Svíþjóðar og Noregs landsliða skipuðum leikmönnum 21 árs og yngri á dögunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert