Búi ráðinn þjálfari Hauka

Búi Vilhjálmur Guðmundsson skrifaði undir tveggja ára samning við Hauka …
Búi Vilhjálmur Guðmundsson skrifaði undir tveggja ára samning við Hauka í dag. Ljósmynd/Haukar

Búi Vilhjálmur Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari knattspyrnuliðs Hauka í 1. deild karla en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Búi skrifar undir tveggja ára samning við félagið en Hafþór Þrastarson mun aðstoða hann.

Kristján Ómar Björnsson hætti nokkuð óvænt með liðið í maí og hafa Haukar leitað að þjálfara síðan. Búi þekkir vel til félagsins en hann var viðloðandi Hauka-liðið allt undirbúningstímabil og var þjálfari Knattspyrnufélags Ásvalla, varaliðs Hauka.

Búi hefur stýrt Hauka-liðinu í síðustu tveimur leikjum liðsins en Haukar sitja í níunda sæti Inkasso-deildarinnar með 9 stig, tveimur stigum frá fallsæti, eftir fyrstu níu umferðir deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert