René Joensen til HB

René Joensen hefur snúið aftur til Færeyja.
René Joensen hefur snúið aftur til Færeyja. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn René Joensen er genginn til liðs við færeyska úrvalsdeildarliðið HB en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Heimir Guðjónsson er þjálfari HB en René kemur til félagsins frá Grindavík.

René er 26 ára gamall sóknarmaður en hann hefur leikið með Grindavík frá árinu 2017. Hann hefur komið við sögu í átta leikjum með Grindvíkingum í sumar í bæði deild og bikar en hann á að baki 35 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað tvö mörk.

HB eru ríkjandi meistarar í Færeyjum en liðið hefur ekki farið vel af stað á þessari leiktíð og situr í fimmta sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert