Kwame Quee til Víkings

Kwame Quee í leik með Breiðabliki.
Kwame Quee í leik með Breiðabliki. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Víkingur Reykjavík hefur fengið Kwame Quee, landsliðsmann Síerra Leóne í fótbolta, að láni frá Breiðabliki. Lánssamningurinn gildir út leiktíðina. 

Quee kom hingað til lands árið 2017 og spilaði þá 15 leiki með Víkingi Ó. í efstu deild. Hann lék svo 21 leik og skoraði ellefu mörk í 1. deild á síðustu leiktíð og gekk í kjölfarið til liðs við Breiðabliks. 

Þar hefur hann lítið fengið að spreyta sig og aðeins komið við sögu í einum leik í Pepsi Max-deildinni og einum bikarleik í sumar. Víkingur er í níunda sæti deildarinnar með tíu stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert