Selfoss skellti lánlausum Garðbæingum

Magdalena Anna Reimus skoraði fyrir Selfoss í kvöld. Hér sækja …
Magdalena Anna Reimus skoraði fyrir Selfoss í kvöld. Hér sækja María Sól Jakobsdóttir og María Eva Eyjófsdóttir í liði Stjörnunnar að henni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Selfoss vann sannfærandi 3:0 sigur á Stjörnunni í Pepsi Max-deild kvenna í knattspyrnu á Selfossvelli í kvöld.

Eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik tóku Selfyssingar leikinn yfir í seinni hálfleiknum og uppskáru tvö mörk frá Hólmfríði Magnúsdóttur og eitt frá Magdalenu Reimus. 

Stjörnukonur voru algjörlega lánlausar upp við mark Selfoss en þær hafa ekki skorað deildarmark síðan í maí. Í kvöld var ekkert í spilunum sem bendi til þess að það myndi breytast.

Selfoss er í 4. sæti deildarinnar með 16 stig en Stjarnan í 5. sæti með 10 stig.

Selfoss 3:0 Stjarnan opna loka
90. mín. Arna Dís Arnþórsdóttir (Stjarnan) á skot framhjá Bjartsýnistilraun utan af velli. Ekki nálægt markinu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert